ok

Heimskviður

Ris og fall Diddy og hörmungar á Gaza

Tónlistarmaðurinn og viðskiptamógúllinn P. Diddy á yfir höfðu sér rúmlega fjörtiu ákærur vegna kynferðisofbeldis, mansals, nauiðgana og annars grófs ofbeldis. Réttarhöldin hefjast í byrjun mai. Stór og öflug skaðabótafyrirtæki hafa safnað frásögnum af ofbeldinu úr ýmsum áttum og fengu um 26.000 ábendingar um ofbeldi, flestar í gegnum samfélagsmiðla. Nokkur hundruð þeirra eru metnar trúðverðugar og um fjörtíu mál hafa verið höfðuð. Hóp- eða fjöldamálsóknir af þessu tagi eru algengar í Bandaríkjunum. Hafsteinn Dan Kristjánsson, lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir bæði kosti og galla við málsóknir af slíku tagi. Helstu ókostirnir séu þeir að þær séu mjög timafrekar, sem komi bæði niður á þolendum og gerendum, og að fyrirtækin séu gjörn á að safna fleiri sögum af ofbeldi í hagnaðarskyni.

Frumflutt

15. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,