Heimskviður

Draumar og rússneska rétttrúnaðarkirkjan

Draumar og prestar verða í forgrunni í Heimskviðum í dag. Við ætlum fyrst skyggnast á bak við kirkjutjöldin í Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Æðsti leiðtogi hennar í Moskvu, Kirill patríarki, hefur stutt allsherjarinnrás Rússlandshers í Úkraínu og sumir halda því fram kirkjan í raun hluti af áróðursmaskínu stjórnvalda. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræddi við úkraínskan prest sem á árum áður var ráðgjafi Kirils. Presturinn hefur gagnrýnt hernað Rússlands harðlega og var gert mæta fyrir sérstakan kirkjudómstól í Rússlandi vegna þess. Vegna ótta um líf sitt ákvað hann mæta ekki.

Svo eru það draumarnir og viðleitni okkar flestra við láta þá rætast. Það gerði Larry Walters árið 1982 þegar hann festi 42 helíumblöðrur í garðstólinn sinn og sveif upp í 16 þúsund feta hæð. Hann hafði dreymt um fljúga síðan hann var strákur og vildi helst fljúga orrustuflugvélum en fékk það ekki því hann var ekki með nógu góða sjón. Draumurinn rættist með blöðrunum en hann flaug miklu hærra og miklu lengur en hann gerði ráð fyrir og varð landsfrægur í Bandaríkjunum á einni nóttu. Draumar Jack Godfrey rættust líka. Hann samdi söngleik um Larry og flugferðina hans sem er sýndur í Manchester á Englandi. Söngleikurinn heitir 42 balloons og við í Heimskviðum ræddum við Jack um Larry Walters, líf hans og draumana okkur allra, sem við megum ekki gefast upp á.

Frumflutt

8. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,