Heimskviður

Sumar-Heimskviður / Týndu börnin í tónlistarmyndbandinu og örlög Duffy

Árið 1993 kom út tónlistarmyndband við lagið Runaway Train með bandarísku hljómsveitinni Soul Asylum. Í myndbandinu voru sýndar myndir af börnum sem lýst hafði verið eftir. Mörg þeirra gáfu sig fram í kjölfar sýningar myndbandsins auk þess sem vinsældir myndbandsins skiluðu því vitað varð um afdrif margra barnanna til viðbótar. Birta fjallaði um þetta áhrifaríka tónlistarmyndband og tók viðtal við söngvara Soul Asylum, Dave Pirner.

Við rifjuðum líka upp örlög söngkonunnar Duffy í vetur. Duffy, sem þekktust er fyrir lag sitt Mercy, virtist hafa horfið nær alveg úr sviðsljósinu aðeins örfáum árum eftir ferill hennar sprakk út fyrir um fimmtán árum. Það sem enginn vissi, og hún opinberaði mörgum árum síðar, var hún varð fyrir grimmilegri frelsisviptingu og kynferðisofbeldi um nokkurra vikna skeið af. Þessi ömurlega lífsreynsla hafði þau áhrif á Duffy hún lokaði sig af og það tók hana um áratug bata. Oddur Þórðarson fjallaði um málið.

Frumflutt

10. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,