Heimskviður

183 - Innrásin í Rafah

Rúm milljón manns í Rafah á Gaza bíður milli vonar og ótta hvort og þá hvenær allsherjarinnrás Ísraelshers í borgina hefjist. Við beinum sjónum okkar þangað í þættinum í dag. Við ætlum líka rýna í söguna. Samband Bandaríkjanna og Ísraels hefur verið undir smásjánni þegar flest spjót standa á Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sem hefur notið mikils stuðnings Bandaríkjastjórnar eins og flestir forverar hans.

Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir markmið Ísraelshers, annars vegar koma í veg fyrir árás á borð við þá sem var gerð sjöunda október endurtaki sig og hins vegar uppræta Hamas-samtökin, náist ekki nema með pólitísku samkomulagi. Það verði ekki gert með því fella síðasta vígamanninn. Hann segir greinilegt Ísraelsmenn ætli sér ráðast á borgina Rafah en þeir hafi enga sýn á það hvernig átökin geti endað.

Frumflutt

11. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,