Heimskviður

204 - Fjaðrastelandi flautuleikarinn

Tvítugur flautuleikari braust inn í náttúruminjasafn í Bretlandi og stal þaðan fjöðrum og fuglshömum af útdauðum fuglum. Þeir voru úr 150 ára gömlu safni manns sem nefndur er faðir lífeðlisfræðinnar. Ránsfenginn ætlaði flautuleikarinn selja fluguhnýtingarmönnum um heim allan. Úr varð ein undarlegasta glæpasaga síðari tíma. Birta skoðaði málið og ræddi við Kirk Wallace Johnson, bandarískan rithöfund sem skrifaði bók um þessa merkilegu sögu. Þá er einnig rætt við Sigþór Stein Ólafsson, laxveiðileiðsögumann og umsjónarmann hlaðvarpsins Hylurinn.

Frumflutt

21. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,