Heimskviður

Sumar-Heimskviður / Sprengjuárás í Madrid og Baby Reindeer

Í mars voru 20 ár liðin frá mannskæðasta hryðjuverki í Evrópu á þessari öld. Þá voru sprengdar 10 sprengjur í og við Atocha-lestarstöðina í miðborg Madrid, höfuðborgar Spánar. Þessa ódæðis var minnst á Spáni fyrr á þessu ári en atburðurinn markaði djúp sár í spænska þjóðarsál og hafði einnig gríðarleg áhrif á spænsk stjórnmál vegna atburðarásarinnar í kjölfar hryðjuverksins. Jóhann Hlíðar Harðarson rifjaði upp söguna með okkur.

Einir vinsælustu sjónvarpsþættir ársins hér á landi eru án efa Netflix þáttaröðin Baby Reindeer. Ólöf Ragnarsdóttir kynnti sér sögu þáttanna og vinsældirnar í Heimskviðum í maí, en þættirnir byggja á sannri sögu eins og flest vita.

Frumflutt

20. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,