Heimskviður

62 | Valdarán í Mjanmar og spilling í Bangladess

Í Heimskviðum vikunnar förum við til Bangladess og Mjanmar, nágrannaríkja sem eiga sér ólíka sögu. Og sögur vikunnar frá þessum ríkjum eru einnig ólíkar.

Við greinum frá nýlegri uppljóstrun Al-Jazeera fréttastofunnar, sem leiddi í ljós samvinnu glæpasamtaka við öryggissveitir ríkisins í Bangladess. Aðalleikarar þessa sögu eru auk forsætisráðherra landsins fjórir bræður, sem eru ýmist hátt settir embættismenn eða ótýndir glæpamenn.

Aðfaranótt mánudags framdi herinn í Mjanmar valdarán. Þann fyrsta febrúar stóð til mjanmarska þingið yrði sett, en kosningar fóru fram í landinu í nóvember þar sem NLD-flokkurinn, eða Lýðræðislega þjóðardeildin, hlaut yfirburða kosningu eða 80% prósent atkvæði. Í skjóli nætur handtóku hermenn mjanmarska hersins helstu þingmenn og leiðtoga flokksins. Þar á meðal Aung San Suu Kyi, stofnanda flokksins og valdamestu konu landsins.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Frumflutt

6. feb. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,