Heimskviður

17 | Morðið á Möltu, þinkosningar í Bretlandi og endalok The Simpsons

Í sautjánda þætti Heimskviðna er fjallað um morðið á Daphne Galizia, blaðakonu á Möltu, árið 2017. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræðir við vinkonu Galizia, Dóru Blöndal Mizzi og Renete Schroeder, framkvæmdastjóra Evrópusamtaka blaðamanna. Rannsókn málsins hafði lítið miðað áfram þangað til leigubílstjóri var handtekinn á flugvelli á Möltu um miðjan síðasta mánuð. Hann var tengiliður milli leigumorðingjanna sem myrtu blaðakonuna og þeirra sem vildu hana feiga.

Þingkosningar fara fram í Bretlandi í næstu viku, þann 12. desember. Vanalega fara kosningar fram á fimm ára fresti í Bretlandi, en líkt og alþjóð veit hefur ýmislegt gengið á í breskum stjórnmálum undanfarin ár. Brexit er sem fyrr í forgrunni, en það er einnig önnur mál sem eru kjósendum hugleikin. Guðmundur Björn segir frá.

Í vikunni var ýjað því þættirnir um Simpson fjölskylduna renni bráðum sitt skeið á enda, þrjátíu þáttaröðum frá því fyrsti þátturinn var sýndur. Aðdáendur þáttanna eru miður sín, eða hvað? Einn af eldheitustu aðdáendum þáttanna segir þetta komið gott og í raun hefði átt loka Simpson-sjoppunni fyrir löngu. Hvernig ætli standi á því? Birta kannaði málið.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Frumflutt

6. des. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,