Heimskviður

146|Kosningar í Póllandi og Ólympíuleikar í París

Við byrjum þáttinn í Póllandi, þar sem þingkosningar verða haldnar í haust, kosningar sem gætu verið afdrifaríkar. Stærsti stjórnmálaflokkurinn, sem á pólsku kallast Lög og réttlæti, hefur ráðið lögum og lofum í Póllandi undanfarin átta ár en togstreita innan flokksins, og gagnvart smærri samstarfsflokkum á hægri vængnum, hefur vissu leyti veikt stöðu pólsku ríkisstjórnarinnar. Stjórnarandstaðan er sameina krafta sína undir forystu Donalds Tusk fyrrum forsætisráðherra, sem leiðir stærsta flokkinn á vinstri vængnum og skoðanakannanir benda til þess það gætu orðið valdaskipti eftir kosningarnar. Björn Malmquist fer með okkur til Póllands.

Ólympíuleikarnir í París á næsta ári verða haldnir í skugga innrásar Rússa í Úkraínu. Margar þjóðir íhuga mæta ekki til keppni verði íþróttamönnum frá Rússlandi og Belarúss leyfð þátttaka. Alþjóða ólympíunefndinni er vandi á höndum, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem pólitík og átök setja svip sinn á Ólympíuleikana. Arnar Björnsson fjallar um málið og ræðir meðal annars við Lárus Blöndal, formann Íþrótta- og ólympíusambands Íslands.

Umsjónarmenn Heimskviða eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Birt

6. maí 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,