Útvarpskonan Þórhildur Ólafsdóttir, sem starfaði einmitt lengi hér á Rás 1, til dæmis í þættinum Samfélagið, kom í þáttinn í dag og sagði okkur ferðasögu dagsins. Hún fluttist, ásamt eiginmanni og tveimur sonum, til Uganda síðasta sumar, honum bauðst vinna og fjölskyldan ákvað að slá til. En hvernig hefur gengið? Hvernig var að flytja frá Íslandi og íslenska veðrinu, þar sem það kemst í fréttirnar ef hitastigið nálgast tuttugu stigin, til Uganda? Við fengum Þórhildi til að segja okkur alla söguna, að minnsta kosti hingað til, því þau eru bara í sumarfríi á Íslandi, dvöl þeirra í Uganda er hvergi nærri lokið. Meðal þess sem hún sagði okkur frá var umferðin og stemningin í höfuðborginni, Kampala, framandi ávexti, staða maka diplómata, ástandið í Uganda, maturinn og menningarmunurinn og hvernig hægt að takast á við hann, komandi úr forréttindaumhverfisins sem við búum í hér á landi.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum:
Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason)
Sitya Loss / Eddy Kenzo (Eddy Kenzo)
Baana Bange / Fred Ssebatta (Fred Ssebatta)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR