Fyrir flesta eru fasteignir þeirra dýrasta veraldlega eign. Til að geta hugsað vel um fasteignina er gott að kunna skil á því hvað felst í góðu viðhaldi, hvað það kostar og hvaða kröfur er hægt að gera til þess. Þá er einnig nauðsynlegt að þekkja hvernig komið er í veg fyrir rakaskemmdir og myglu.
Þetta segir Stefán Árni Jónsson húsasmíðameistari og byggingariðnfræðingur en hann heldur námskeið fyrir fasteignaeigendur þar sem komið er inná fasteignakaup, viðhald og framkvæmdir, og markmiðið er að auka vitund fasteignaeigenda um hvað það er sem raunverulega skiptir máli þegar viðhald er annars vegar. Stefán Árni fræddi okkur um viðhald og hvað ber að hafa í huga við kaup á fasteignum.
Páll Ásgeir Ásgeirsson, leiðsögu- og útivistamaður, kom svo í þáttinn í dag eins og aðra þriðjudaga í sumar, með það sem við köllum Veganestið. Hann hefur gefið okkur góðar ráðleggingar í sambandi við útivist og gönguferðir í öllum landshlutum, í síðustu viku sagði hann okkur frá því að ferðast með allt á bakinu og í dag sagði hann okkur frá áhugaverðum áfangastöðum á hálendinu.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum:
Þjóðvegurinn / Brimkló (Magnús Eiríksson)
Litla dúfa / Selma Björnsdóttir (Dolly Parton, texti Jónas Friðrik Guðnason)
Litlir kassar / Þokkabót (Peta Seeger, texti Þórarinn Guðnason)
Ólýsanleg / Hildur Vala (Magnús Þór Sigmundsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR