Við heyrðum öðruvísi ferðasögu um Ísland, öllu heldur í kringum Ísland af sjó. En Stella Soffía Jóhannesdóttir umboðsmaður hjá Umboðsskrifstofu rithöfunda eða Reykjavík Literary Agency RLA fékk það einstaka tækifæri að verða gestafyrirlesari um íslenskar bókmenntir á leiðangursskipi á vegum National Geographic sem sigldi í kringum Ísland á tíu dögum og kom víða við. Á þessum tíma fékk Stella Soffía allt aðra upplifun af landinu sínu en hún hafði verið vön.
National Geographic er okkur kannski fyrst og fremst kunnuglegt sem eitt af virtustu vísindatímaritum í heimi og svo sjónvarpsstöð en fyrirtækið gerir margt annað í samvinnu við önnur samtök og fyrirtæki eins og áðurnefnda leiðangra og ferðast með ferðamenn sem vilja fræðast um ólík samfélög og fjölbreytta staði um allan heim en með það að meginmarkmiði að ferðast með ábyrgum hætti í sátt við náttúruna.
Stella sagði okkur allt frá upplifun sinni í ferðinni og við fáum líka að vita hvaða íslensku bækur og rithöfunda hún ræddi sérstaklega við ferðamenn í þessum Íslandsleiðangri.
Og fugl dagsins var á sínum stað.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-08-28
South River Band - Á skútunni minni.
Moura, Ana - Amor em tons de sol maior.
Jónas Sigurðsson Tónlistarm. - Hafið er svart.
Cave, Nick - Something's gotten hold of my heart.
UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR