Hann er bara stundum að vinna í sófanum
Rætt við Teit Mangússon tónlistarmann um áhrifavalda á textagerð, föðurhlutverkið, hvernig það er að samræma föðurhlutverkið og tónlistarsköpun, afkomukvíða, tuttugu ára gamlan bíl,…
Saga menntunar kvenna er löng og áhugaverð. Hún hefur þó lítið verið kennd í skólum. Þessi þáttur fer yfir sögu menntunar kvenna og horfir sérstaklega á það hvaða hlutverki húsmæðraskólar gegndu í réttindabaráttunni fyrir menntun kvenna. Í þættinum er tekið viðtal við Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur, prófessor emerita í mannfræði og fyrrum þingmann Kvennalistans, Mörtu Maríu Arnarsdóttur, skólameistara Hússtjórnarskólans í Reykjavík og Ragnheiði Geirsdóttur, stjórnmálafræðing og fyrrum nemanda Húsó.
Umsjón: Signý Pála Pálsdóttir.

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.