Sunnlenska nýsköpunarfyrirtækið Orkídea er þátttakandi í Evrópuverkefni sem var tilkynnt um á dögunum. Verkefnið styður þróun á sjálfbærum virðiskeðjum með endurnýjanlegri orku til að svara þörfum bænda. Orkídea hlýtur um 44 milljónir króna og er það í annað sinn sem verkefnið er styrkt af ESB. Sveinn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri Orkideu kom til okkar til að segja okkur betur út á hvað þetta allt saman gengur.
Sex nýjum löndum var boðið að ganga inn í hið svokallaða BRICS-bandalag að loknum leiðtogafundi BRICS-ríkjanna á dögunum. Við ræddum BRICS-ríkin og efnahagslega getu þeirra við Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum, og spurðum hvort BRICS ríkin komi til með að veita Evrópusambandinu, Bandaríkjunum og dollaranum samkeppni á næstu árum.
Líf hefur kviknað í áratugadeilu sem hafði legið í dvala í örstund: flugvallardeiluna. Við fengum til okkar Eirik Bergman prófessor í stjórnmálafræði jafnt til að rifja upp sögu deilunnar og hvar hagsmunir og pólitík liggur í þeim. Svo fórum við yfir flokksráðsfundi VG og Sjálfstæðisflokks frá liðinni helgi með honum.
Dönsk stjórnvöld ætla að leggja fram frumvarp sem ætlað er að koma í veg fyrir ósæmilega meðferð á hlutum sem eru trúarlegs eðlis, en það er gert í kjölfar þess að nokkuð hefur borið á kóranbrennum í Danmörku og Svíþjóð. Þannig verður til að mynda bannað að brenna trúarrit á almannafæri. En hvernig er þessum málum háttað hér á landi? Má brenna trúarrit á Austurvelli án afleiðinga? og hvar liggja mörk tjáningarfrelsis og hatursorðræðu? Við ræðum þessi mál við Sigurð Örn Hilmarsson, lögmann, sem einnig er formaður Lögmannafélags Íslands.
Á mánudögum förum við yfir tíðindi úr heimi íþróttanna í lok þáttar, og á því var engin undantekning í dag þegar Kristjana Arnardóttir, íþróttafréttakona, kom til okkar.