Fréttir af flugslysum, flugóhöppum og mikilli ókyrrð í lofti hefur ekki hjálpað flughræddum. Við spjölluðum við Katrínu Mjöll Halldórsdóttur sálfræðing um óttann og hvernig við tökumst sem best á við hann.
Þingkosningarnar í Frakklandi fengu nokkuð óvæntan endi í gær. Þrátt fyrir að fyrri umferð kosninga og kosningaspár hafi reiknað með sigri Þjóðfylkingarinnar vann Nýja Alþýðufylkingin mun stærri sigur en búist var við. Hvað segja Frakkar um málið í morgunsárið? Við ræddum niðurstöður kosninganna og frönsku þjóðarsálina við Laufeyju Helgadóttur listfræðing, leiðsögumann og Parísarbúa til áratuga.
Nýr aðili í þjónustu við þjóðveginn er að fara að opna sína fyrstu þjónustumiðstöð bráðlega á Suðurlandi en í bígerð að er þessar miðstöðvar verði víðs vegar hringinn í kringum landið. Þarna verður boðið uppá hleðslu fyrir rafbíla, veitingar og salerni svo eitthvað sé nefnt. Lögð verður áhersla á snjallþjónustu. Sveinn Waage sagði okkur meira um málið.
Gunnar Birgisson fór yfir íþróttirnar.
Við höldum áfram umfjöllun okkar um Coda terminal verkefni Carbfix í Hafnarfirði sem hefur valdið óánægju bæjarbúa, aðallega vegna staðsetningar og væntanlega hafnarframkvæmd. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, var gestur okkur í lok þáttar.
Tónlist:
Jónas Sig - Milda hjartað.
Paul Simon - Me And Julio Down By The Schoolyard.
No Doubt - Don't Speak.
Dúkkulísur - Svarthvíta hetjan mín.
Dina Ögon - Mormor.
Júníus Meyvant- Hailslide.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir - Töfrar.
Sting - If I ever lose my faith in you.