Morgunútvarpið

10. des - Sýrland, rafmagnsleysi og fjársjóðsleit

Rafmagn ætti vera komið á hjá öllum í Vík og í Mýrdal eftir umfangsmikla bilun sem varð þar í gær. Svæðið er keyrt á varafli og fólk beðið um fara sparlega með rafmagn svo ekki komi til frekari skerðinga. Einar Freyr Elínarson sveitastjóri Mýrdalshrepps verður á línunni.

Kristín Edwald, formaður Landskjörstjórnar, verður gestur okkar í upphafi þáttar. Landskjörstjórn mun tilkynna um úthlutun þingsæta í dag.

S&P 500-vísi­tal­an sló met við lok­un markaða á föstu­dag og hafði þá aldrei verið hærri. Við ræðum þessa stöðu við Snorra Jakobsson, hagfræðing hjá Jakobsson Capital, og spáum í þróun næstu mánuðina.

Við höldum áfram ræða stöðuna í Sýrlandi, með áherslu á þau ríki sem stutt hafa við stjórnvöld þar, og ræðum við Jón Ólafsson, sérfræðing í málefnum Rússlands, og Kjartan Orra Þórsson, sérfræðing í málefnum Írans.

Sævar Helgi Bragason um vísindafréttir.

Undirbúningur er hafinn fjársjóðsleit við Langanes. Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur kemur og segir okkur betur frá því og nýrri bók hennar um morðin á Sjöundá.

Frumflutt

10. des. 2024

Aðgengilegt til

10. des. 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,