Morgunútvarpið

Landbúnaðarháskólinn, menningarframlag streymisveitna, gleymd öskubuskusaga Volkswagen, upplýsingaóreiða og ráð frá málarameistara.

Landbúnaðarháskóli Íslands opnar dyrnar fyrir áhugasömum á Hvanneyri og á Keldnaholti í dag. Kynna á námsframboð og aðstöðu skólans ásamt því boðið verður uppá fræðslu tengda lífræðilegri fjölbreytni. Við heyrðum í Rósu Björk Jónsdóttur, frá Landbúnaðarháskólanum.

Streymisveitum verður gert greiða menningarframlag til íslensks samfélags fáist nýtt frumvarp Menningar- og viðskiptaráðuneytisins samþykkt. Lilja Alfreðsdóttir leit við hjá okkur í spjall um málið.

Björn Berg var hjá okkur fyrir átta fréttir og fór yfir hin fjölbreyttust fjármál. Allt frá fjármálum fólks sem er minnka við sig til þess hvernig Volkswagen varð á einum degi verðmætasta fyrirtæki heims fyrir tilstilli undarlegrar atburðarásar.

Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær skrifar Halldóra Lillý Jóhannsdóttir, lögfræðingur, um áhyggjur sínar af unga fólkinu okkar í aðdraganda kosninga. Og spyr hvort við viljum tryggja ungt fólk fært um taka þátt í lýðræðis­leg­um ferl­um á upp­lýst­um grund­velli og hvort þurf­i þjálfa það í greina og meta rétt­mæti og gagn­semi upp­lýs­inga sem það neyt­ir. Það er mikið um hreinlega rangar upplýsingar séu þar settar fram sem sannindi. Halldóra kom til okkar.

Á bera á tréverkið eða pallinn í sumar? Hvernig er best bera sig og hvaða efni á nota svo sem bestur árangur náist? Gylfi Már Ágústsson, málarameistari, leiddi okkur í allan sannleikann.

Frumflutt

22. maí 2024

Aðgengilegt til

22. maí 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,