AFS óska eftir fósturfjölskyldum fyrirskiptinema hér á landi um þessar mundir. Hvers vegna ætti maður að sækjast í það? Ingunn Ólafsdóttir framkvæmdastjóri AFS ræddi málið við okkur.
Bretar ganga að kjörborðinu í dag. Þar með líkur snarpri kosningabaráttu sem Rishi Sunak boðaði til í maí, öllum að óvörum. Strax frá upphafi hefur því verið spáð að Íhaldsflokkurinn bíði afhroð og að Verkamannaflokkurinn komist til valda í fyrsta sinn síðan 2010. Við förum yfir stöðuna með Eiríki Bergmann prófessor í stjórnmálafræði.
Ólga er meðal íbúa í Hafnarfirði vegna samkomulags Coda terminal, dótturfélags Carbfix, og bæjarstjórnar um að koma upp borteigum í hrauninu steinsnar frá Völlunum í Hafnarfirði. Íbúar segja í tengdum facebook hóp að það vanti meiri reynslu á verkefnið og óvissuþættir séu um áhrif á umhverfið. Ekki sé verið að mótmæla verkefninu sem slíku heldur staðsetningunni. Við fengum til okkar Ólaf Elínarson, sem leiðir samskiptamál hjá Carbfix.
Við erum líklegast sjaldan jafn óörugg um réttindi okkar og þegar við erum á ferðalögum. Við ræddum neytendamál fólks á ferð og flugi við Ívar Halldórsson stjórnanda evrópsku Neytendaaðstoðarinnar og lögfræðing Neytendasamtakanna.
Við kynntum okkur sprotafyrirtæki sem sett var á laggirnar árið 2022 með það að markmiði að uppræta hlutdrægni við öflun og ráðningar starfsfólks. Helga Jóhanna Oddsdóttir er einn af frumkvöðlunum á bakvið Opus Futura og kíkti til okkar.
Tónlist:
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Söngkona - Töfrar.
Violent femmes - Blister in the sun.
Carpenter, Sabrina - Please Please Please.
Sophie Ellis Bextor - Murder On The Dancefloor.
Arnór Dan - Stone By Stone.
10CC - Good morning judge.