Það er farið að krauma undir leikhúsunum en leikárin eru í þann mund að hefjast. Við fengum til okkar Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóra til að segja okkur frá því hvað er framundan og hvernig þau ætla að yngja upp í áhorfendahópnum.
Þau Steiney og Jóhann Alfreð hafa verið á ferð og flugi á Hljóðvegi 1 í allt sumar og sent frá sér póstkort héðan og þaðan af landinu. Nú er komið að síðasta póstkortinu þetta sumarið. En Hljóðvegur 1 var á ferð um Reykjanesskagann fyrir helgi og hann Jóhann Alfreð leit meðal annars við í Grindavík. Þar kíkti hann í verslunina Blómakot þar sem finna má blóm, gjafavöru og lítið kaffihús og ræddi við Guðfinnu Bogadóttir, eða Guggu, eiganda verslunarinnar sem hefur rekið hana í 15 ár.
Slökkviliðið telur á annan tug manns hafa verið til heimilis í iðnaðarhúsi við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði sem eyðilagðist í bruna í gær. Vekja þurfti að minnsta kosti sex íbúanna til að bjarga þeim út þegar mikill eldur logaði í húsinu og mikil gæfa þykir að ekki fór ver. Í kjölfar brunans við Bræðraborgarstíg 2020, þar sem þrjú létust, var ráðist í átakið örugg búseta fyrir alla. Í ár hefur litlu mátt muna í tveimur eldsvoðum þar sem fjöldi fólks býr í iðnaðarhúsnæði. Hefur staðan ekkert batnað? Birgir Finnsson starfandi slökkvistjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins kom til okkar.
Á laugardaginn tóku um 11 þúsund manns þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Við ætlum að tala um hlaup en að þessu sinni hlaup með öðru sniði. Hið árlega Sumarkjóla- og freyðivínshlaup verður haldið á morgun, þriðjudag, í Elliðaárdalnum. Hlaupið er 5 kílómetra langt og hlaupið er í sumarkjólum og drykkjustöðvarnar eru með freyðivíni í stað vatns. Þær Birna Jónsdóttir og Rakel Jóhannsdóttir eru skipuleggjendur hlaupsins og koma til okkar til að segja okkur nánar frá þessu sérstaka hlaupi.
Eins og alltaf á mánudögum skoðum við helgarsportið. Óðinn Svan Óðinsson íþróttafréttamaður fór með okkur yfir íþróttir helgarinnar.
Lagalisti:
JÓNAS SIG - Vígin falla.
COLDPLAY - Yellow.
METRONOMY - The Look.
NIALL HORAN - Heaven.
GDRN - Vorið.
AMY WINEHOUSE - Back To Black.
POST MALONE - Chemical.
STEVIE NICKS - Edge Of Seventeen.