Umsjón: Rúnar Róbertsson og Hafdís Helga Helgadóttir
Þann 7. október munu um 130 konur taka þátt í Leggöngunni sem Snjódrífur standa fyrir til stuðnings Lífskrafti. Markmið Leggöngunnar er að safna fyrir eggheimtuaðgerðum og sálfræðimeðferð fyrir fólk sem þarf að takast á við ófrjósemi eftir krabbameinsmeðferð. Ágóði söfnunarinnar rennur til Lífskrafts sem hefur það markmið að safna áheitum fyrir krabbameinstengd verkefni og um leið minna á mikilvægi útivistar og sjálfseflingar í endurhæfingu eftir veikindi. Til okkar komu Aðalheiður Birgisdóttir (Heiða í Nikita) og Anna Sigríður Arnardóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Spildu.
Fréttir vikunnar eru á sínum stað. Nóg að ræða eftir vikuna. Í þetta sinn komu Oddur Þórðarson fréttamaður og Karen Kjartansdóttir almannatengill til okkar að spjalla um það hvað bar hæst, hvað var skemmtilegast og hvað var skrítnast.
Töðugjöld á Hellu er bæjarhátíð þar sem áherslan hefur verið á nærsamfélagið en ekki að fá sem flesta gesti á svæðið. Við hringdum til Hellu og tölum við Eirík Vilhelm Sigurðarson, markaðs- og kynningarfulltrúi hjá Rangárþingi ytra.
Svo í lok þáttar kom Matthías Már Magnússon dagstjóri Rásar2 til okkar til þess að segja okkur nánar frá Tónaflóði Rásar 2 sem er við Arnarhól á Menningarnótt eins og vani er en tuttugu ár eru síðan það fyrsta fór fram
Lagalisti:
GDRN & FRIÐRIK DÓR & MOSES HIGHTOWER & STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR - Springur út.
Bubbi Morthens - Fallegur Dagur.
MUGISON - Stóra stóra ást.
RAGGA GÍSLA & BESTA BAND - Úpsí búpsí.
The Revivalists - Wish I knew you.
JÚNÍUS MEYVANT - Beat Silent Need.
LENNY KRAVITZ - Believe.
Bríet - Sólblóm.