Við höldum yfirreið okkur yfir hátíðir um Verslunarmannahelgina í þættinum í dag. Við byrjum á því að hringja norður á Akureyri og tókum púlsinn á Davíð Rúnari Gunnarssyni, Dabba Rún, en hann veit allt um það sem fram fer í bænum um helgina.
Við hringdum líka suður til Eyja þar sem Ólöf Ragnarsdóttir fréttakona er stödd. Ólöf er Vestmanneyingur í húð og hár og gaf okkur innsýn inn í það hvað Vestmanneyískar fjölskyldur gera á Þjóðhátíð.
Fréttir vikunnar voru á sínum stað. Eygló Harðardóttir verkefnastjóri hjá Ríkislögreglustjóra og Markús Þórhallsson fréttamaður á RÚV komu til okkar og töluðu um ólgu innan SJálfstæðisflokksins, Verslunarmannahelgina framundan og allt það sem skeði í vikunni.
Og yfirferðin hélt áfram um hátíðir um helgina. Þau Agnes Hlynsdóttir og Franz Gunnarsson komu til að segja okkur nánar frá mikilli rokkhátíð sem fram fer um helgina á skemmtistaðnum Lemmý í Austurstræti.
Og í lokin hringdum við á Flúðir en þar er dagskrá um Verslunarmannahelgina eins og mörg undanfarin ár. Bessi Theódórsson skipuleggjandi var á línunni.
Tónlist
ÍRAFÁR - Ég Sjálf.
DOORS - Soul Kitchen.
KUSK & ÓVITI - Elsku vinur.
FRIÐRIK DÓR - Bleikur og blár.
HREIMUR, MAGNI, BERGSVEINN OG GRETTISKÓRINN - Lífið er yndislegt.
NÝDÖNSK - Fram Á Nótt.
DAÐI FREYR & GAGNAMAGNIÐ - Hvað með það?.
ROCK PAPER SISTERS - Never Be Mine.
GREIFARNIR - Saman í frí