Morgunútvarpið

Undirbúningur sólmyrkvahátíðar,varnarmálin í ESB og samfélagsmiðlar valda börnum kvíða

Sólmyrkvinn er handa við hornið og á Hellissandi er undirbúningur fyrir menningarhátíðina Iceland Eclipse hámarki. Þar vinna 200 manns því gera upplifun gesta sem besta og á meðal þess sem verður á staðnum er veðurvél sem á reyna hnika skýjunum aðeins frá á meðan þetta náttúruundur ríður yfir. Jón Bjarni Steinsson, skipuleggjandi hátíðarinnar, var á línunni.

Í vikunni fengum við fréttir af því marktækt samband á milli netsamskipta og þunglyndis- og kvíðaeinkenna hjá stúlkum. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem sýna einnig fram á líkamlegt þrek hópsins fer versnandi. Á sama tíma stendur samfélagsmiðlarisinn Meta frammi fyrir málaferlumen fyrirtækið er sakað um gera miðla sína viljandi ávanabindandi fyrir börn og ungmenni. Óttar Guðbjörn Birgisson, sálfræðingur og lektor við hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands stendur umræddri rannsókn og skoðar þar hvernig netsamskipti og samfélagsmiðlanotkun íslenskra ungmenna tengist geðheilsu og líkamlegu þreki þeirra.

Umræðan um Evrópusambandið hefur farið um víðan völl og í Morgunútvarpinu í gær var Eiríki Bergmann tíðrætt um varnarmálin, sem eru hans mati eitt af stóru málunum ásamt sjávarútvegi, landbúnaði og gjaldmiðlamálum. Við höldum áfram ræða um hvort skynsamlegt horfa til Evrópu í þessu samhengi og fengum til okkar dr. Bjarna Magnússon lögmann og sérfræðing í alþjóðamálum.

HM í frjálsum hófst í gær og er sjálfsögðu í beinni útsendingu á RÚV. Íslensku keppendurnir hófu leik í gær og við heyrðum í Þorkeli Gunnari Sigurbjörnssyni, okkar manni í Englandi, og tókum púlsinn.

Birt

11. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,