
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Sólmyrkvinn er handa við hornið og á Hellissandi er nú undirbúningur fyrir menningarhátíðina Iceland Eclipse að ná hámarki. Þar vinna 200 manns að því að gera upplifun gesta sem besta og á meðal þess sem verður á staðnum er veðurvél sem á að reyna að hnika skýjunum aðeins frá á meðan þetta náttúruundur ríður yfir. Jón Bjarni Steinsson, skipuleggjandi hátíðarinnar, var á línunni.
Í vikunni fengum við fréttir af því að marktækt samband sé á milli netsamskipta og þunglyndis- og kvíðaeinkenna hjá stúlkum. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem sýna einnig fram á að líkamlegt þrek hópsins fer versnandi. Á sama tíma stendur samfélagsmiðlarisinn Meta frammi fyrir málaferlumen fyrirtækið er sakað um að gera miðla sína viljandi ávanabindandi fyrir börn og ungmenni. Óttar Guðbjörn Birgisson, sálfræðingur og lektor við hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands stendur að umræddri rannsókn og skoðar þar hvernig netsamskipti og samfélagsmiðlanotkun íslenskra ungmenna tengist geðheilsu og líkamlegu þreki þeirra.
Umræðan um Evrópusambandið hefur farið um víðan völl og í Morgunútvarpinu í gær var Eiríki Bergmann tíðrætt um varnarmálin, sem eru að hans mati eitt af stóru málunum ásamt sjávarútvegi, landbúnaði og gjaldmiðlamálum. Við höldum áfram að ræða um hvort skynsamlegt sé að horfa til Evrópu í þessu samhengi og fengum til okkar dr. Bjarna Má Magnússon lögmann og sérfræðing í alþjóðamálum.
HM í frjálsum hófst í gær og er að sjálfsögðu í beinni útsendingu á RÚV. Íslensku keppendurnir hófu leik í gær og við heyrðum í Þorkeli Gunnari Sigurbjörnssyni, okkar manni í Englandi, og tókum púlsinn.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.