Morgunútvarpið

Almyrkvinn frá öllum hliðum,mikið um dýrðir í Bláa lóninu og ónýtir vegir fyrir austan

Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir, húsfreyja á Hallfreðarstöðum 1 í Hróarstungu, betur þekkt sem Tinna tuð í Facebook-hópnum Íbúar Fljótsdalshéraðs, er á leiðinni með bílinn sinn í hjólastillingu útaf ástandinu á Hróarstunguvegi, sem liggur um byggðirnar fyrir austan. Sveitarfélagið bendir á Vegagerðina og Vegagerðin bendir á sveitarfélagið en við heyrðum í Tinnu.

Augu heimsins beinast Íslandi í almyrkvanum í kvöld en bandaríski morgunþátturinn Good Morning America verður í beinni útsendingu frá Bláa lóninu í dag. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, mætti til okkar.

Veðurspáin fyrir almyrkvann er ekkert sérstök og búast við það verði skýjað þegar almyrkvinn skellur á í kvöld. Birta Líf Kristinsdóttur veðurfræðingur var í beinni útsendingu frá hljóðveri Veðurstofu Íslands.

Búast við þungri umferð, götulokunum og stemningu í almyrkvanum í kvöld. Lögreglan stendur í ströngu og Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, var á línunni og fór yfir stöðuna.

Ferðamenn og aðrir hópast á Vesturland þar sem almyrkvinn mun sjást best. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, var á línunni til fara yfir hvernig þetta gengur allt saman.

Siggi Gunnars er staddur fyrir vestan og var á línunni.

Birt

12. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,