• 00:14:44Treyjudagurinn nálgast
  • 00:28:22Gosverksmiðja rís í Hafnarfirði
  • 00:48:51Framtíð Vísis
  • 01:09:57Sálfræði peninganna

Morgunútvarpið

Treyjudagurinn,sálfræði peninganna,framtíð Vísis og gosverksmiðja í Hafnarfirði

Á Íslandi greinist meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabbamein. Á Treyjudeginum næstkomandi föstudag klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Dagurinn hefur verið haldinn í Danmörku, Svíþjóð og Noregi um árabil. Börn með krabbamein, styrktarfélag stendur deginum. Gréta Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri Barna með krabbamein kom til okkar.

Gosfélagið hóf starfsemi í Hafnarfirði í gær og er þetta í fyrsta skipti í 20 ár sem verksmiðja af þessari stærðargráðu er tekin í notkun. Stefnt er því afkastageta verksmiðjunnar verði um 70 milljón lítrar á ári sem gerir hana einni stærstu framleiðslulínu landsins. Verksmiðjan brýtur líka upp þá fákeppni sem verið hefur á gosdrykkjamarkaði á Íslandi í áratugi eða allt frá því Sól-Víking rann inn í Coca-Cola á Íslandi árið 2001. Brynjar Freyr Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, kom í heimsókn.

Sjónvarpsfréttirnar á Sýn hafa verið lagðar niður og eftir stendur aðeins einn sjónvarpsfréttatími á Íslandi. Í umræðum um málið í Morgunútvarpinu í gær veltu viðmælendur okkar fyrir sér hvort Vísir yrði nýttur til koma sjónvarpsfréttum á framfæri en vefurinn er gríðarlega vel sóttur og því mörgu tækifæri sem leynast þar.Til stendur beina auknum krafti fréttaþjónustu á Vísi og Bylgjunni og ritstjórinn Kolbeinn Tumi Daðason kom til okkar og fræddi okkur um það og fleira.

Eftir síðustu stýrivaxtahækkun erum við í Morgunútvarpinu með peninga og skortinn á þeim á heilanum. Við ætlum því kynna okkur bók sem heitir Sálfræði peninganna en hún fjallar ekki um hvernig á árangri í fjárfestingum og „sigra markaðinn“ eða verða ríkur á einni nóttu. Þetta er bók um hegðun, viðhorf og sjálfsþekkingu og þar af leiðandi um hvernig við getum tekið betri og meðvitaðri ákvarðanir. Þýðendurnir Georg Lúðvíksson og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir komu til okkar.

Birt

2. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,