
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Á síðasta fundi bæjarráðs Hveragerðis á dögunum var samþykkt tillaga frá Okkar Hveragerði þess efnis að bærinn gangi eftir skýrum svörum og forsendum frá Vegagerðinni og innviðaráðuneytinu vegna boðaðra breytinga á almenningssamgöngum milli Suðurlands og höfuðborgarsvæðisins. Þau vilja að lágmarki eina ferð á morgnana á háannatíma gangi beint á BSÍ án tafa við vagnaskipti í Mjódd. Lárus Jónsson bæjarfulltrúi var á línunni.
Greining Viðskiptaráðs sýnir að umboðsvandi sé til staðar í íslenska lífeyriskerfinu, að samþjöppun áhættu innanlands sé of mikil og að sjóðfélagar hafi takmörkuð áhrif á ákvarðanir sjóðanna. Lagðar eru til breytingar á kerfinu, til dæmis um aukna áhættudreifingu, meira aðhald og gagnsæi. Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs, ræddi við okkur um þetta.
Þjóðin er klofin í afstöðu sinni til aðildaviðræðna við Evrópusambandið og sumum finnst umræðan vera farin út fyrir öll skynsamleg mörk. En hvernig eigum við að tækla það að vera ósammála öðrum fjölskyldumeðlimum? Jafnvel maka? Theodor Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi og fjölskylduráðgjafi, gaf okkur góð ráð.
Jóhann Páll mætti ferskur úr íþróttadeildinni með mola úr heimi íþróttanna.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.