Morgunútvarpið

Kosningar,tilraunir á hundum,ofverndun barna og það sem enginn þorir að segja upphátt

Fréttir um kofa í vesturbæ Reykjavíkur sem til stendur rífa vegna þess hann er ekki öryggisvottað leiktæki hafa vakið mikla athygli. Í gær fengum við til okkar móður úr hverfinu sem velti fyrir sér hvort börn fái hreinlega ekki lengur taka áhættur, sem geti jafnvel haft slæm áhrif til framtíðar. Sabína Steinunn Halldórsdóttir, íþrótta- og heilsufræðingur, hefur skoðað þessi mál og vill meina við séum taka allt of mörg tækifæri af börnum. Sabína hefur frætt fólk um hreyfifærni, hreysti og skynþroska barna í náttúrunni á námskeiðunum Færni til framtíðar og við heyrðum í henni.

Fréttir frá Bandaríkjunum um 1.500 hunda sem var bjargað frá því vera seldir á tilraunastofur vöktu athygli víða um heim á dögunum. En hversu algengt er það hundar gangi kaupum og sölum í þessum tilgangi? Er algengt gerðar séu tilraunir á hundum fyrir vörur sem við notum dags daglega? Margrét Marteinsdóttir frá Dýraverndarsamtökum Íslands kom til okkar.

Við höldum áfram fjalla um sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram næstkomandi laugardag. Í dag fengum við til okkar blaðamennina Eyrúnu Magnúsdóttur frá Gímaldinu og Aðalstein Kjartansson frá Heimildinni. Við ræðum hvernig baráttan hefur farið fram, hvernig flokkunum hefur gengið koma stefnumálum sínum á framfæri og hvað gerist þegar talið verður upp úr kössunum um helgina.

Grunnskólakennarinn Ragnheiður Stephensen birti grein um skólamál á Vísi í gær undir fyrirsögninni „Það sem ekki segja upphátt“. Ragnheiður bendir á ýmislegt sem betur mætti fara í íslenskum skólum og hvernig skýr námsmarkmið eftir greinum hurfu með tilkomu aðalnámskrár grunnskóla fyrir 15 árum. Þá veltir hún fyrir sér af hverju það „tabú“ tala um samræmd próf við lok grunnskóla og sendir foreldrum sem taka ekki skólaskyldu alvarlega væna pillu. Við fengum Ragnheiði til okkar.

Birt

12. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,