Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Formannsslagur í Framsókn,íslenskur handboltalæknir svía og hvernig er að festast í geimnum?

Ísland og Svíþjóð mættust á EM í handbolta í gær. Það vita ekki allir að læknir sænska landsliðsins heitir Arnar Sigurðsson. Hann var atvinnumaður í tennis áður en hann sneri sér að læknisfræðinni og fór í sérnám í bæklunarlækningum í Svíþjóð. Hann hefur haldið þeirri stöðu eftir að hann flutti heim og fór að vinna í Orkuhúsinu. Við ræddum boltann við Arnar í Morgunútvarpinu.

Suni Williams, geimfari hjá NASA, hefur látið af störfum hjá bandarísku geimferðastofnuninni eftir 27 ára starf. Hún er frægust fyrir að hafa setið föst í geimnum í níu mánuði árið 2024 en ferðin langa, sem hófst sem tilraunaflug Starliner-geimfars Boeing var síðasta förin hennar út í himingeiminn. Stjörnu-Sævar kíkti í heimsókn í Morgunútvarpið sagði okkur þessa merkilegu sögu.

Mikil ólga er í Minneapolis í Minnesota-ríki í Bandaríkjunum eftir að ICE-liðar skutu hinn 37 ára gamla Alex Jeffrey Pretti til banda um helgina. Bandarísk stjórn völd segja Pretti hafa ógnað alríkisfulltrúum en það stangast á við myndskeið og vitnisburði sjónarvotta. Allt hefur verið á suðurpunkti eftir að ICE-liði skaut hina 37 ára gömlu Renee Good til bana í byrjun janúar og hafa íbúar mótmælt framferð ICE-liðanna. Í síðustu viku fengum við til okkar Katrínu Frímannsdóttur, sem hefur búið í Minneseota í 35 ár. Hún sagði okkur frá hvernig var að búa í ríkinu og hvernig lífið þar breyttist eftir að Trump tók við völdum í Bandaríkjunum. Við endurfluttum valinn kafla úr viðtalinu.

Ingibjörg Isaksen og Lilja Alfreðsdóttir verða í framboði þegar Framsókn velur sér nýjan formann á flokksþingi í febrúar. Staðan hefur oft verið betri í flokknum og við fengum þær báðar til okkar til að segja okkur hvernig þau ætla að rífa flokkinn upp á ný.

Edda Sif var á línunni frá Svíþjóð og fór með okkur yfir stöðuna á EM í handbolta.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,