• 00:13:45Valdeflandi barnadjass
  • 00:30:02Hvernig getur arkitektúr bætt samfélagið?
  • 00:48:47Aðferðir eltihrella
  • 01:09:43JK Rowling og trans

Morgunútvarpið

Aðferðir eltihrella og J.K Rowling

læra rytmíska tónlist er bæði gefandi og valdeflandi fyrir börn og í sumar verður sumarnámskeið þar sem krakkar læra spila djass eftir eyranu og spinna. Námskeiðið er haldið á hátíðinni Barnadjass í Mosfellsbæ en henni standa félagasamtökin Barnadjass. Hátíðin er stofnuð eftir norskri fyrirmynd og listrænn stjórnandi beggja hátíða er Odd André Elveland, norskur djasstónlistarmaður og frumkvöðull í kennslu ungra barna. Guðrún Rútsdóttir, formaður félagasamtakanna Barnadjass, mætti til okkar í Morgunútvarpið ásamt Eddu Margréti Jonasdóttur og þær sögðu okkur betur frá þessu.

Oddvitar stjórnmálaflokkanna og sérfræðingar hittast í Grósku á eftir klukkan níu og ræða hvernig beita arkitektúr og hönnun með markvissum hætti við uppbyggingu borgarinnar til skapa gæði og gott samfélag fyrir íbúa, börn og fullorðna. En hvernig er þetta gert? Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt hjá Landslagi, flytur fyrirlestur í Grósku á eftir en mætti fyrst í Morgunútvarpið í spjall.

Fréttir um falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu í síðustu viku vöktu mikla athygli og þóttu til marks um hversu langt eltihrellar ganga til athygli þolenda sinna. Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, sagði í kjölfarið í fréttum á Sýn umsáturseineltismál séu alltof algeng hér á landi og erfitt bregðast við þeim. Jenný kom í Morgunútvarpið og sagði okkur meðal annars frá hvernig eltihrellar misnota tæknina til áreita þolendur sína.

Í Morgunútarpinu í gær sögðum við frá því fjöldi aðdáenda Harry Potter ætli ekki horfa á væntanlega þætti um galdrastrákinn vegna þess skoðanir höfundarins J.K Rowling á trans fólki misbýður þeim. Rowling hefur nýtt frægð sína og fjármagn til grafa undan tilveru trans fólks undanfarin ár og margra mati valdið miklum skaða. Reyn Alpha Magnúsdóttir og Irma Alexandra Hopkins frá Trans Ísland komu í Morgunútvarpið og sögðu okkur frá hvaða áhrif Rowling hefur haft á tilvist trans fólks í Bretlandi og hér á landi.

Birt

14. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,