Morgunútvarpið

Þykjó og eldra fólk og ofbeldi

Lögreglan hefur undanfarið unnið því fræða eldra fólk um ofbeldi, hvort sem það er líkamlegt, andlegt, kynferðislegt, stafrænt eða fjárhagslegt. Þetta er hópur sem verður sannarlega fyrir ofbeldi og málin eru oftast mun alvarlegri sökum félagslegrar einangrunar og veikbyggðra líkama ásamt því gerendurnir eru í sumum tilvikum ummönnunaraðilar þeirra eða jafnvel ættingjar. Fræðslunni hefur verið afar vel tekið og í kjölfarið hafa komið upp mál sem fólk opnar sig um og vill ræða. Við fengum til okkar Símon Geir og Unnar Þór frá lögreglunni og Evu Lind frá Reykjavíkurborg, sem hefur skipulagt fræðsluna í samstarfi við lögregluna.

Deloitte á Íslandi gaf á dögunum út skýrslu um stöðu tæknimála hjá stjórnendum íslenskra fyrirtækja. Þar kemur meðal annar fram íslenskir stjórnendur telji gervigreindina fyrst og fremst fela í sér tækifæri til hagræðingar og einföldunar en nefna síður aukna virðisköpun. Könnunin gefur vísbendingar um stjórnendur hér á landi séu enn fastir inn í kassanum þegar kemur hagnýtingu gervigreindar. Mögulega kunna þeir ekki hrista upp í gömlu verklagi, gömlum ferlum eða hugsa hlutina upp á nýtt? Olgeir Óskarsson frá Deloitte kom til okkar.

Sveitarstjórnarkosningarnar eru handan við hornið en kosningasjónvarpinu á Sýn skýtur upp kollinum nýr og ferskur greinandi sem við ættum öll kannast við. Gunnar Sigurðarson gerði garðinn frægan í Hraðfréttum en fær loksins fullnýta menntun sína sem stjórnmálafræðingu í sjónvarpi. Gunnar kom til okkar og við fáum forsmekk af því sem koma skal.

Við höldum áfram með umræðuna sem fór af stað eftir fréttir bárust af kofa í Vesturbænum sem til stendur rífa vegna þess hann er ekki öryggisvottað leiktæki. Í gær heyrðum við í Sabínu Steinunni Halldórsdóttur, íþrótta- og heilsufræðingi, sem sagði frjáls leikur barna væri á undanhaldi. Í dag fengum við svo til okkar Emblu Vigfúsdóttur og Sigríði Sunnu Reynisdóttur frá ÞYKJÓ, sem er hönnunarverkefni sem miðar því örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í frjálsum leik.

Birt

13. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,