
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands hittust á sögulegum fundi í gær. Donald Trump hefur ítrekað líst yfir að hann vilji að Bandaríkin eignist Grænland en formaður landsstjórnar Grænlands segir Grænlendinga ekki hafa áhuga á því. Halla Hrund Logadóttir, þingmaður og aðjúnkt við Harvard, þekkir málefni Grænlands og norðurslóða vel og rýndi hún í viðbrögð heimsins við fundinum í Morgunútvarpinu.
Ragnar Þór Marinósson eða Raggi bleikja, rekstrarstjóri Tungusilungs, biðlar til einhleypra kvenna að flytja á sunnanverða Vestfirði, enda nóg af einhleypum körlum þar með fínar tekjur. Við heyrðum í Ragga.
Nikotínpúða njóta ótrúlegra vinsælda hér á landi og velta söluaðilar slíkra púða hundruð milljóna árlega. Á nýju ári hafa fjölmargir ákveðið að leggja púðana á hilluna og einn af þeim er Jakob Birgisson, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra, en hann mætti til okkar eftir að hafa verið níkótínlaus í tvo sólarhringa. Af hverju ákvað hann að hætta og hvernig gengur? Við fórum yfir stöðuna með Jakobi.
Íslands leikur sinn fyrsta leik á EM í handbotla gegn Ítölum á morgun en mótið hefst í dag. RÚV fjallar að sjálfsögðu vandlega um leikina á mótinu og við fengum tvo af máttarstólpum þeirrar umfjöllunar í heimsókn, þau Kára Kristjáns og Helgu Margréti og spáðum í spilin.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.