Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Norskur Óskar,hnefaleikakonan Erika,kaffistofa Samhjálpar og gæði sæðis

Ólafur Haukur Ólafsson er rekstarstjóri kaffistofu Samhjálpar og starfar þar eftir kjörorðunum Virðing og kærleikur. Þar eldar hann mat fyrir hóp fólks sem virðist hvergi mega vera en nú síðast hafa íbúar og eigendur fyrirtækja í nágrenni húsnæðis við Grensásveg 46 mótmælt harðlega áformum um að kaffistofa Samhjálpar verði þar. Ólafur Haukur glímdi við fíknisjúkdóma á yngri árum sínum en frá því að hann náði bata hefur hann helgað lífi sínu að hjálpa þeim sem farið hafa af sporinu. Ólafur Haukur kom til okkar í Morgunútvarpið.

Vísindamenn hafa nú fundið vísbendingar um að tíðni sáðláta geti haft áhrif á gæði sæðis; þ.e.a.s að gæðin aukist í takti við fjölda sáðláta. Okkar manni úr heimi vísindanna, Sævari Helga Bragasyni, er ekkert óviðkomandi og fór yfir þessar gleðifréttir með okkur.

Íslendingar eignuðust Óskarsverðlaunahafa á dögunum þegar norska myndin Sentimental Value var valin besta erlenda myndin á hátíðinni. Friðrik Hilmarsson er á meðal framleiðenda myndarinnar en hann hefur lengi fengist við kvikmyndagerð, flutti til Noregs árið 1990 og starfar í dag fyrir Osló fund, sem tók þátt í fjármögnun Sentimental Value. Friðrik er staddur á landinu í dag og Morgunútvarpið greip hann í spjall um Óskarinn og kvikmyndagerð í Noregi, sem er í miklum blóma um þessar mundir.

Hnefaleikakonan Erika Nótt æfir nú að kappi fyrir fyrsta atvinnumannabardagann sinn. Hún er nýkomin heim frá Los Angeles þar sem hún hélt áfram að undirbúa sig og slær ekki slöku við á Íslandi. Erika leyfir fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum að fylgjast með ferlinu en tugir þúsunda fylgjast með henni þar. Erika kom í Morgunútvarpið.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,