Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Skiptiskjól,næturhrafn HM,Gunnlaugur Árni á U.S Open og hvernig á að nesta börnin

Verið er að leggja lokahönd á að koma skiptiskjólum fyrir á þremur stöðum í borginni. Skiptiskjól er vettvangur fyrir íbúa til að skiptast á nytjahlutum og styrkja hringrásarhagkerfið um leið. Fyrsta skiptiskjólið var sett upp við Sundlaugaveg í fyrra. Þetta var tilraunaverkefni sem fékk góðar viðtökur íbúa og því var ákveðið að setja upp tvö ný skiptiskjól í sumar, eitt við Eiríksgötu og hitt við Sogaveg. Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavík, kom til okkar.

HM karla í fótbolta hefst á morgun og mótið verður að sjálfsögðu í þráðbeinni útsendingu á RÚV. Mótið fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó og það er því ljóst að einhverjir leikir fari fram á nóttunni. Það þarf að lýsa þessum leikjum eins og öðrum og nátthrafn Ríkisútvarpsins verður enginn annar en Gunnar Ormslev. Hann var hjá okkur.

Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér í vikunni þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi. Hann verður fyrsti íslenski karlinn til að keppa á mótinu og annar Íslendingurinn til að keppa á risamóti karla. Margeir Vilhjálmsson, sérstakur golfsérfræðingur Morgunútvarpsins,kom til okkar og setti þennan magnaða árangur í samhengi.

Nú þegar grunnskólarnir eru á leiðinni í sumarfrí eru allskonar námskeið í boði fyrir ungu kynslóðina. Því fylgir gríðarleg nestisframleiðsla fyrir foreldra sem þurfa töfra fram allt að þrjá nestispakka á dag svo barnið svelti ekki við leik og störf. Til aðstoða foreldra þessa lands ætlum við fengum áhrifavaldinn Hörpu Lind Hjálmarsdóttur til að gefa okkur góðar hugmyndir að næringarríkum nestispökkum frá hljóðstofu okkar á Akureyri.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,