Morgunútvarpið

Hold,þrekvirki í Lagarfljóti,þetta reddast og ungmenni á brókinni í sund

Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi stefnir á sögulegt sund niður Lagarfljót. Hann ætlar synda af stað um leið og aðstæður leyfa en tilgangurinn er vekja athygli á þjónustu Píetasamtakanna. Sigurgeir var á línunni.

Offita er skilgreind sem alvarlegur og víðfemur sjúkdómur. Við þeim sjúkdómi hafa nýlega komið fram læknisfræðilegar lausnir svo sem þyngdarstjórnunarlyf og efnaskiptaaðgerðir. Ber þá feitu fólki þá skylda til fara á lyf eða í aðgerð fyrst það er hægt? Hvaða áhrif hafa þessar lausnir á fitufordóma og átröskunarsjúkdóma? Eru þær líklegar til draga úr offituvandanum eða auka hann? Brynhildur Björnsdóttir veltir þessum spurningum fyrir sér í þættinum Hold á Rás 1 og hún kom til okkar.

Morgunblaðið greindi frá því á dögunum það væri í tísku fara í sund í nærbuxunum. Í fréttinni sagði forstöðumaður Laugardalslaugar þessi tíska hafi valdið vandræðum í hreinsikerfum sundlauga enda telst fatnaðurinn ekki viðurkenndur sundfatnaður. Vandamálið teygir anga sína víða og á Akureyri hefur Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður sundlauga Akureyrar, sömu sögu segja. Hann mætti í hljóðstofu RÚV á Akureyri og spjallaði við okkur.

Björk Jakobs, Salka Sól og Selma Björns láta allt flakka og langflest er dagsatt í sýningunni Þetta reddast, sem fer á svið í Bæjarbíói í október. Sýningin fylgir eftir Bíddu bara, sem var feykivinsæl sýning á sínum tíma en hefur bara svo margt gerst það er löngu kominn tími á nýtt trúnó og annað hláturskast. Björk Jakobs og Selma Björns komu til okkar.

Birt

9. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,