Morgunútvarpið

Hjólhýsabyggð í Gufunesið og ópíóðar og ketamín á höfuðborgarsvæðinu

Kristján Hafþórsson, sem kallar sig stundum Krissa Haff, er á leiðinni í Vinnuskóla Kópavogs í sumar með fyrirlestra um jákvæðni, hugrekki og valdeflingu. Kristján telur vinnuskólana vanmetna og vill koma jákvæðum skilaboðum til unga fólksins sem þar starfar. Við fengum Kristján til okkar í valdeflandi spjall.

Guðmundur tæknitröll Morgunútvarpsins færði okkur fréttir af nýjustu tækni og vísindum. Vélmenni sem þrífa voru aðal umræðuefnið.

Lokafundur vormisseris í fundaröðinni Heilsan okkar fór fram í Veröld, húsi Vigdísar í síðustu viku. Umfjöllunarefnið var ópíóíðar og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagi og fjallaði Adam Bauer, réttarefnafræðingur á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands um ópíóíða og ketamín á höfuðborgarsvæðinu og um greiningu á lyfjaávísunum, fráveitugögnum og fölsuðum lyfjum. Adam kom til okkar ásamt Martin Inga Sigurðssyni, prófessor við Læknadeild HÍ.

Stefnt er því hjólhýsabyggðin sem hefur staðið við Sævarhöfða í tvö ár færist í Gufunes. Í borgarstjórn var deilt um þessa ákvörðun þó flestir geti verið sammála um aðstoðan við Sævarhöfða hafi verið óviðunandi. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir býr í hjólhýsi og hún kom til okkar ræða þetta mál.

Birt

1. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,