• 00:11:57Leysa þekkt vandamál foreldra
  • 00:34:20Tæknihornið
  • 00:50:43Bakvið tjöldin í kosningunum
  • 01:16:02Fer með frisbígolf til Grænlands

Morgunútvarpið

Kosningaúrslitin,Ratatag og frisbígolf á Grænlandi

Ratatag er einfalt QR-kóðakerfi sem tengir saman eigendur hluta sem týnast við þau sem finna týndu hlutina. Á bak við fyrirtækið eru tvær mæður sem starfa hjá Decode. Þær voru glíma við vandamál sem flestir foreldrar kannast við og varð það kveikjan fyrirtækinu. Þær eru ekki með tæknibakgrunn en með hjálp gervigreindar hafa þær forritað app, heimasíðu og eru komnar með útgáfu sem notendur geta byrjað prófa. Stofnendur Ratatag, þær Guðrún Matthildur Sigurbergsdóttir og Silja Rut Sigurfinnsdóttir komu til okkar.

Okkar besti maður Guðmundur Jóhannsson mætti til okkar í Morgunútvarpið með það nýjasta úr síbreytilegum heimi tækninnar.

Við hnýttum slaufu á kosningaumfjöllun Morgunútvarpsins með því til okkar Margréti Helgu Erlingsdóttur, frá fréttastofu Sýnar, og Baldvin Þór Bergsson, ritstjóra fréttatengdra þátta á RÚV, til fara yfir kosningaúrslitin. Þá reynum við þau til upplýsa okkur um hvað gekk á bakvið tjöldin í kosningastjónvarpinu á Sýn og RÚV, hver blikkaði hvern, hver fékk faðmlag á meðan aðrir fengu handaband? Allt þetta og meira til í Morgunútvarpinu.

Birgir Þór Ómarsson kom á sínum tíma með frisbígolfið til Íslands frá Bandaríkjunum og í dag eru fjölmargir folfvellir á Íslandi. Birgir Þór ætlar kynna Grænlendinga fyrir þessari skemmtilegu íþrótt og vinnur því setja þar upp velli í samstarfi við heimamenn. Þar vinna meðal annars fangar uppbyggingunni í samfélagsþjónustu. Birgir Þór kom í Morgunútvarpið.

Birt

18. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,