Morgunútvarpið

Stóra kofamálið, Logi Pedro,verstu námslán á norðurlöndum og lýðræðisveislan.is

Okkar góði fasti gestur Stjörnu-Sævar mætti til okkar með nýjustu fréttir úr himinhvolfinu en eitt er víst: Við komum ekki tómum kofanum þar í dag frekar en fyrri daginn.

Vextir námsmanna hafa tífaldast eftir Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN fyrir sex árum samkvæmt nýrri greiningu Nönnu Hermannsdóttur, sem segir núverandi námslánakerfi grafi undan markmiðum atvinnustefnu Íslands og eigin lögbundna hlutverki sem „félagslegur jöfnunarsjóður“. Lánakjörin koma illa út í samanburði við Norðurlöndin og hlutfall námsmanna sem fær námsstuðning er einnig langlægst hér á landi og greiðslubyrði jafngreiðslulána mest íþyngjandi. Nanna var á línunni.

Hvað ætlarðu kjósa á laugardaginn? Ef þú átt eftir kynna þér málið gæti Lýðræðisveislan.is verið eithvað fyrir þig. Þar er finna allt um öll framboð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á einum stað. Hvorki meira minna. Þú finnur frambjóðendur, stefnumál og fréttir í þínu sveitarfélagi. Halldór Berg Harðarson, maðurinn á bakvið þessa veislu, kom til okkar.

Krakkar í Vesturbæ Reykjavíkur leita allra leiða til koma í veg fyrir kofi sem þau hafa byggt verði rifinn. Kofinn er ekki öryggisvottað leiktæki samkvæmt borginni en hann er engu síður vinsælli í hverfinu en rólóvöllurinn. Anna Kristín Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur og móðir í hverfinu bendir á ýmislegt í umhverfi barnanna hættulegra en kofinn, til dæmis bílaumferð og holóttar götur og hún kom til okkar ræða málið.

Við þekkjum Loga Pedro sem tónlistarmann, bæði á eigin vegum og í hljómsveitinni Retro Stefson. Hann er hins vegar líka vöruhönnuður og er með sýningu á Hönnunarmars. Sýningin heitir Heimur og byggir á hugmynd um heimili sem afstöðu: hvert rými, hver hlutur og hvert form beri með sér ákveðna menningarlega sýn. Við fengum Loga til okkar í spjall um sýninguna og lífið sjálft en hann starfar sem vöruhönnuður hjá Össuri.

Birt

11. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,