• 00:11:50Sarpur minninganna
  • 00:23:13Frambjóðendur á samfélagsmiðlum
  • 00:47:46Hvað geriðirðu við fermingapeninginn?
  • 01:11:58Sportpakkinn

Morgunútvarpið

Flokkarnir á TikTok og hvað eiga fermingarbörn að gera við peninginn sinn?

Sarpur Minninganna: þegar þau vorum við er áhugaverð innsetning og upplifunarkvöldverður á Hönnunarmars. Verkið er byggt afa Thijs Fisser sem syrgir eiginkonu sína og hvernig hann finnur sig knúinn til syrgja í veraldlegum hlutum og athöfnum, til finna fyrir nærveru hennar. Stóllinn þeirra, kápan hennar, kommóðan sem þau völdu saman, ljósmyndir og heimavídjó. Þetta eru ekki leikmunir heldur hlutir knúnir merkingu. Vöruhönnuðurinn Valgerður Birna Jónsdóttir kom til okkar og sagði okkur frá sýningunni.

styttist í sveitarstjórnarkosningar en frambjóðendur hafa herjað á væntanlega kjósendur úr öllum áttum undanfarnar vikur. Flokkarnir eru misduglegir við nýta sér samfélagsmiðla til koma skilaboðum sínum á framfæri en hvernig gengur þeim nýta þessa tækni, sem getur hæglega ráðið úrslitum? Ingunn Lára Kristjánsdóttir er samfélagsmiðlasérfræðingur fréttstofu RÚV og hún rýndi með okkur í málið.

Fermingarbörn landsins sitja mörg á háum fjárhæðum og velta skiljanlega fyrir sér hvað þau eigi gera við allan þennan pening. Er best leggja hann inn á bók? Fjárfesta? Kaupa rafmyntir fyrir allt saman. Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson kom til okkar og fór yfir möguleikana sem eru í boði.

Einar Örn Jónsson mætti eldhress með sjóðandi heitan mola úr heimi íþróttanna.

Birt

7. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,