Morgunútvarpið

Rúnar Hroði,netöryggi,tæknihornið og Ragga Nagli um peptíð

Hópur netöryggissérfræðinga frá Íslandi tók nýverið þátt í stærstu netöryggisæfingu heims. Rúmlega 4.000 þátttakendur frá 41 landi tóku þátt í æfingunni og skipuðu 16 fjölþjóðleg lið sem kepptu sín á milli. Ísland myndaði sameiginlegt lið með Noregi og Atlantshafsbandalaginu. Netsvikamálum fjölgar ört um þessar mundir og Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður CERTIS, kom í Morgunútvarpið og leggði okkur línurnar.

Okkar maður Guðmundur Jóhannsson var á sínum stað með tæknihornið og ræddi gervigreindina.

Umræðan um peptíð hefur ekki minnkað eftir við töluðum um þau síðast í Morgunútvarpinu en fólk kaupir slíkt á svörtum markaði í von um betri húð, svefn og endurheimt eftir æfingar svo eitthvað sem nefnt. Ragga Nagli hefur kynnt sér þessi mál og var á línunni frá Köben og fræddi okkur.

Þúsundþjalasmiðurinn Rúnar Hroði æfir fyrir sinn fyrsta járnkarl og gerir það meðfram vinnu, barnauppeldi og almennum dugnaði á heimilinu. Þetta gerir Rúnar til styrkja Barnaspítala Hringsins en eftir erfitt æfingartímabil styttist í hann fari út og leikar hefjist. Rúnar kom til ykkar í spjall.

Birt

4. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,