Morgunútvarpið

Logi Einarsson um íslensku og Apple,Lúsmý,Vecct og Valur Grettis um borgarpólitíkina

Vecct-mílan fer fram í kvöld á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði. Þetta er í fyrsta skipti sem götumílukeppni er haldin á Íslandi og flestir af fremstu hlaupurum landsins hafa boðað komu sína. Markmiðiðið með Vecct-mílunni er lyfta upp íslenskri hlaupa- og frjálsíþróttamenningu og gera millivegalengdahlaupum hærra undir höfði. Sem liður í því verður boðið upp á hæsta verðlaunafé í keppnishlaupi á Íslandi. Svo er stóra spurningin: Nær einhver rjúfa fjögurra mínútna múrinn? Skipuleggjandinn Guðmundur Magnússon mætti í Morgunútvarpið.

Hópur líffræðinga hefur undanfarin þrjú sumur reynt finna klakstöðvar lúsmýsins til þess unnt sporna við útbreiðslu þess. Í umfjöllun Vísis kemur fram þrátt fyrir gildrur hafi verið lagðar víða um land enn fátt um svör. En hvað höfum við lært? Þurfum við þjóðarátaki til vinna bug á þessari plágu? Arnar Pálsson, prófessor við líf- og umhverfisdeild Háskóla Íslands, kom til okkar og sagði okkur frá þessum þörfu tilraunum til útrýma lúsmýinu.

Oddvitasamtöl Heimildarinnar fara fram í forsal Tjarnarbíós dagana í vikunni og er það Valur Grettisson blaðamaður sem tekur á móti oddvitum Reykjavíkurframboðanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Valur kom til okkar og kafaði aðeins ofan í sveitarstjórnarmálin með okkur.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fundaði með fulltrúum tæknifyrirtækisins Apple í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Battersea í London síðasta mánudag. Tilgangur heimsóknarinnar var þrýsta á Apple bjóði upp á íslensku í iOS-stýrikerfinu. Myndband þar sem Leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Hera Hilmarsdóttir auk tónskáldsins Atla Örvarssonar senda Apple kveðju var hluti af áskorun Loga. Þá afhenti hann fyrirtækinu áskorun fyrir hönd ÖBÍ þar sem Apple var hvatt til þess innleiða íslensku og standa þannig vörð um eitt af kjarnagildum sínum sem aðgengi. Logi Einarsson kom í Morgunútvarpið.

Birt

28. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,