
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Íslenska appið LifeTrack hefur á skömmum tíma aðstoðað þúsundir Íslendinga að skilja betur næringuna sem þeir setja ofan í sig, nú þegar reglulegar fréttir berast af slæmu heilsufari þjóðarinnar. Hjónin Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir settu LifeTrack í loftið fyrir ári síðan en fólk notar appið til að fylgjast með því sem það borðar, passa að máltíðir séu rétt samsettar og hversu mikið það á að borða. Þau vilja að meina að fólk sé að ná mögnuðum árangri bara með því að skilja næringuna betur og við fengum Inga Torfa til að fræða okkur um málið í beinni frá Akureyri.
Við horfðum til himins með Sævar Helga Bragasyni, Stjörnu-Sævari.
Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi benti á dögunum á niðurstöður frjálshyggjustofnunarinnar Cato um áhrif innflytjenda á Bandaríkin síðustu 30 ár. Meginniðurstaðan er sú að innflytjendur styrki samfélög fjárhagslega og efnahagslega. Áhugaverðar niðurstöður í dag þegar umræðan um innflytjendur hefur sjaldan verið meira áberandi. Við heyrðum í Friðjóni.
Sjónvarpsþættirnir Hildur hafa slegið í gegn í Finnlandi og áhorfin á fyrstu vikunni þar í landi fóru yfir milljón. Þættirnir eru byggðir á metsölubók hinnar finnsku Satu Rämö, sem býr á Ísafirði en Ebba Katrín Finnsdóttir, Lauri Tilkanen og Rick Okon fara með helstu hlutverk. Við fengum til okkar leikstjórann Tinnu Hrafnsdóttur.
Stór íþróttahelgi að baki, bikarkeppnin í körfubolta, ofurskálin og svo auðvitað vetrarólympíuleikarnir á Ítalíu þar sem bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn datt í brautinni þegar hún reyndi við brunkeppnina á Vetrarólympíuleikunum með slitið krossband. Við fórum yfir íþróttirnar með Þorkeli Gunnari Sigurbjörnssyni sem staddur er á Ítalíu.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.