
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Nú býðst fólki að fara á bókasöfnin í Kringlunni og Sólheimum utan opnunartíma, án þjónustu starfsfólks. Bókaormar eru hæstánægðir með fyrirkomulagið, samkvæmt því sem við í Morgunútvarpinu heyrum en hver nýtir sér þessa þjónustu og af hverju? Og hvernig hefur þjónusta bókasafna þróast í takt við tímann? Rut Ragnarsdóttir og Unnar Geir Unnarsson frá Borgarbókasafninu kíktu til okkar.
Á þessu ári eru 40 ár liðin frá leiðtogafundi Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta og Mikhaíl Gorbatsjev aðalritara sovéska kommúnistaflokksins í Höfða. Íslenskt samfélag fór á hvolf en Íslendingar fengu aðeins ellefu daga til að skipuleggja fund þessara tveggja æðstu þjóðarleiðtoga heims. Sindri Freysson kom í Morgunútvarpið og sagði okkur frá nýrri mynd sem segir sögu þeirra sem létu þetta þrekvirki ganga upp og áhrif fundarins á íslenskt samfélag og mannkynssöguna.
Um fátt annað var rætt í gær en ræðu Donald Trump Bandaríkjaforseta á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos. Ræðunnar hafði verið beðið með ofvæni vegna ítrekaðra krafna hans um að ná Grænlandi á sitt vald. Í ræðunni sagði hann ýmislegt en það sem gerðist eftir ræðuna var að rammi að framtíðarsamkomulagi virðist hafa náðst um Grænland. Þá sagði Trump að engir refsitollar yrðu lagðir á Evrópuríki fyrir að styðja Grænland. Heimsbyggðin snýst í hringi og við ræddum viðbrögðin við Piu Hansson forstöðumann Alþjóðastofnunnar.
Tvíhöfði sendi í vikunni frá sér ákall til aðdáenda sinna um gamalt plakat sem sýnir þa félaga Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson í gervi hamingjamra hjóna. Um svipað leyti hafði Jón Gnarr óskað eftir upplýsingum um hver tók af þeim umrædda mynd. Ástæðan fyrir leitinni er 30 ára afmæli Tvíhöfða á þessu ári en undirbúningur fyrir mikla brúðkaupsafmæli í Hörpu stendur yfir. Jón Gnarr kom í Morgunútvarpið og sagði okkur betur frá þessu.
Ísland heldur leik áfram á EM í handbolta í kvöld og Einar Örn Jónsson var á línunni frá Svíþjóð og greindi fyrir okkur stöðuna.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.