
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Sjaldan er góð vísa of oft kveðin. Umhleypingar í veðrinu geta valdið jafnt tjóni á fólki og eignum þess ef ekki er hugað að hinum ýmsu brögðum til að koma í veg fyrir það. Sigrún A. Þorsteinsdóttir sérfræðingur hjá VÍS ræðir málið við okkur.
Heiða Björg Hilmisdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, ræðir við okkur um borgarmálin og kennaraverkföll.
Við tökum stöðuna á væringum í norskri pólitík með blaðamanninum Atla Steini Guðmundssyni sem er búsettur í Noregi.
Lára V. Júlíusdóttir, lögmaður og sérfræðingur í vinnumarkaðsrétti, verður gestur okkar eftir átta fréttir þegar við ræðum kjaradeilu kennara og viðsemjenda og kæru foreldra.
Fréttir vikunnar: Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi ráðherra og ráðgjafi, og Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.