Rússar lækka þröskuld vegna kjarnavopna, stopp á sameiningu afurðastöðva, enn ósamið hjá kennurum og læknum
Rússland hefur lækkað þröskuldinn til þess að beita kjarnavopnum. Þetta er svar við leyfi Bandaríkjanna fyrir því að Úkraínuher beiti langdrægum vopnum gegn Rússlandi.
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir stöðu kjötafurðastöðva flókna og að nauðsynlegt sé að skýra lagalega stöðu þeirra fyrir samruna. Eftirlitið fór fram á stöðvun slíkra samruna í dag.
Nemendur á Litla Hrauni hafa ekki geta stundað nám sökum kennaraverkfallsins í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Formaður félags fanga segir rof á náminu stefna bata og endurhæfingu fanga í voða.
Hvorki hefur samist í kjaradeilu kennara né lækna á fundum í dag. Áfram verður reynt á morgun, en lausn er ekki í sjónmáli.