Kvöldfréttir

Kaupin á TM og VG flýtir landsfundi

Fjármálaráðherra er sáttur við niðurstöðu Landsbankans um kaupin á TM. Hann segir söluna á Íslandsbanka minnka umsvif ríkisins á móti.

Forysta Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hefur ákveðið flýta landsfundi flokksins.

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna og Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu hittust í París í dag. Þar baðst Biden afsökunar á þeim töfum sem urðu á vopnasendingum Bandaríkjanna til Úkraínu.

Dönsk yfirvöld hækkuðu nýlega viðbúnaðarstig vegna netógnar frá Rússlandi. Forstjóri netöryggisfyrirtækis segir Ísland gæti verið í svipaðri stöðu vegna stuðnings við Úkraínu.

Hafrannsóknastofnun er þátttakandi í stóru alþjóðlegu hvalatalningarverkefni á Íslandsmiðum sem stendur fram á haust. Forstjóri Hafró segir reynt verði meta hvað og hversu mikið hvalir éti.

Frumflutt

7. júní 2024

Aðgengilegt til

7. júní 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,