Kvöldfréttir

Eldur á Höfðatorgi, brot Ísraelshers, hópamyndun unglinga og þétting úthverfa

Tjón vegna eldsins í Turninum á Höfðatorgi í dag virðist minna en á horfðist, þó nokkur fyrirtæki hafi tilkynnt um tjón. Slökkvistarf gekk vel.

Palestínumaður, sem ísraelskir hermenn bundu við jeppa um helgina, segir þá hafa sparkað í skotsár sem þeir veittu honum og hótað honum lífláti.

Foreldrar eru lykilbreyta í baráttunni gegn ofbeldi barna, mati afbrotafræðings. Hann segir hópamyndun unglinga ekki nýmæli og ekki þurfa vera áhyggjuefni.

Rannsóknarlögreglumaður sem stýrði rannsókn Bátavogsmálsins segir erfitt hafi verið taka skýrslu af sakborningi eftir handtöku. Hún hafi verið ótrúverðug í öllu sem hún sagði og mögulega haldin einhvers konar ranghumyndum.

Borgarstjóri kynnti í dag áætlanir um byggingu fimm hundruð húsa í Grafarvogi á næstu árum. Stefnt er á þétta útvherfi borgarinnar á næstu árum í húsnæðisátaki borgarinnar.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Frumflutt

26. júní 2024

Aðgengilegt til

26. júní 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,