Kvöldfréttir

Leit að ferðamönnum, öryggi fangavarða, Bangladess, vegur í sundur í Djúpi, blaut tjaldstæði

Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir leitarhundar og drónar séu væntanlegir í Kerlingarfjöll til leitar ferðamönnum sem óskuðu eftir aðstoð Neyðarlínunnar. Búið er útiloka yfirgefinn bílaleigubíll tilheyri ferðamönnunum.

Fangaverðir vilja betri þjálfun og betri mönnun á vaktir á Litla-Hrauni til bregðast við auknu ofbeldi í fangelsinu

Þing Bangladess hefur verið leyst upp og unnið er myndun bráðabirgðastjórnar. Forsætisráðherrann hefur flúið land.

Áin Mórilla rauf varnargarða við veginn um Kaldalón í norðanverðu Ísafjarðardjúpi í nótt. Vegurinn er skemmdur og fólk á Snæfjallaströnd innilokað þar til viðgerð lýkur.

Mörg tjaldstæði á suðurhluta landsins eru gegnsósa eftir rigningar síðustu daga. Umsjónarmaður tjaldsvæðisins á Selfossi segist ekki muna eftir jafn krefjandi sumri.

Og tveir kvenkyns hákarlar á Ítalíu hafa fjölgað sér án nokkurrar aðkomu karlhákarla, þrjú ár í röð.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Frumflutt

6. ágúst 2024

Aðgengilegt til

6. ágúst 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,