Vonskuveður hefur verið um landið norðanvert í dag. Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi fram á morgundaginn. Færð er farin að spillast á fjallvegum.
Fylgi Samfylkingar og Miðflokks dalar en Samfylkingin er þó enn stærst í nýjum þjóðarpúlsi Gallup.
Stjórnmálafræðingur segir að línur séu farnar að skýrast; flug Viðreisnar og fall Sjálfstæðisflokksins séu staðfest í hverri könnun á fætur annarri.
Kennarar og ríkið funda í fyrsta skipti í hálfan mánuð á sunnudag. Kennarar MR fara í verkfall á mánudag.