Kvöldfréttir

Virkjanaleyfi fyrir vindorku og þrjátíu kílómetra eldveggur í Grikklandi

Orkustofnun veitti í dag fyrsta leyfið til vindorkuvirkjunar á Íslandi. Orkumálastjóri segir mikilvægt móta langtímastefnu um þessi mál. Þúsundir hafa þurft flýja skógarelda í úthverfi í norðausturhluta Aþenu, höfuðborgar Grikklands. Skógareldinum hefur verið lýst sem þrjátíu kílómetra löngum eldvegg.

Þeir fjórir sem þegar hafa hlotið dóm í stóra Kókaínmálinu neituðu allir Pétur Jökull Jóhannsson hefði stýrt innflutningi á nærri hundrað kílóum af kókaíni árið 2022. Tveir þeirra neituðu svara spurningum við aðalmeðferð málsins í dag.

Forseti Bandaríkjanna ræddi stöðuna í Miðausturlöndum við leiðtoga Evrópuríkja í dag. Íranir gætu hafið umfangsmikla árás á Ísrael í vikunni.

Fimmtán af átján sakborningum sem eru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi neituðu sök þegar mál þeirra var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Frumflutt

12. ágúst 2024

Aðgengilegt til

12. ágúst 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,