Kvöldfréttir

Fíkniefnasala á netinu, óeirðir í Bretlandi, ákært fyrir manndráp, gabbútköll og neyslurými

Lögregla hefur undanfarnar vikur lagt hald á tugi kílóa af fíkniefnum sem ganga kaupum og sölum á netinu. Innflutningur á kannabisefnum, sem varla hefur þekkst hér í áraraðir, er farinn sjást aftur.

Hundruð hafa verið handtekin og ákærð í tengslum við óeirðirnar í Bretlandi, og fyrstu dómarnir féllu í dag. Meðal annars var karlmaður dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir sinn þátt í róstum í Southport, þar sem þrjár stúlkur voru stungnar til bana fyrir rúmri viku.

Maður, sem er ákærður fyrir hafa banað sambýliskonu sinni, er talinn hafa beitt hana miklu ofbeldi í aðdraganda andlátsins. Hann er einnig ákærður fyrir ofbeldi gegn konunni rúmum tveimur mánuðum fyrr.

Erfitt er koma í veg fyrir björgunarlið blekkt til leitar, sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns. Mannslíf séu mikils metin og öll neyðarboð njóti vafans.

Hvalur sem strandaði við smábátahöfnina í Þorlákshöfn í morgun er laus. Björgunarsveitarmenn í Þorlákshöfn náðu draga hann á haf út þegar flæddi að.

Sérútbúið neyslurými var opnað í Reykjavík í dag og verður heilbrigðisþjónusta veitt þeim sem þangað leita. Heilbrigðisráðherra segir algera nauðsyn á slíku skaðaminnkandi úrræði til frambúðar.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Frumflutt

7. ágúst 2024

Aðgengilegt til

7. ágúst 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,